Fréttir
Stofndagur Rebekkustúkunnar nr. 17, Þorbjargar.
17. desember, 2012Á fullveldisdaginn 1. desember 2012 var boðað til hátíðarfundar í Oddfellowhúsinu við Vonarstræti í Reykjavík.Tilefnið var
að nú skyldi stofnuð ný Rebekkustúka. Ekki hafði verið stofnuð Rebekkustúka í Reykjavík í 16 ár.Húsið var
opnað kl. 13:00 og hófu gestir að streyma prúðbúnir í hús.Hátíðarfundurinn var svo settur með viðhöfn kl. 14:00
LESA MEIRA
80 ára afmæli Oddfellowhússins við Vonarstræti.
03. desember, 2012Helgina 19. og 20. janúar n.k. verður haldinn sýning að Vonarstræti 10 í Reykjavík en þann 7. desember s.l. voru liðin 80 ár frá
því húsið var vígt.
Sýningin mun fjalla um upphaf félagsaðstöðu Reglunnar í Reykjavík frá því hún var stofnuð á Íslandi og nefnist
sýningin “Úr tjaldi í höll”.
LESA MEIRA
Oddfellow - skálin 2012 - 2013
01. desember, 2012Fyrsta umferð í keppni um Oddfellow skálina var spiluð mánudagskvöldið 26. nóvember.
Markmiðið er að koma saman og styrkja félagsauðinn.Spilað verður fjórum sinnum og gilda þrjú bestu skorin til verðlauna
LESA MEIRA
Kennslumyndbönd komin á Innri síðuna
21. nóvember, 2012Á innri síðu oddfellow.is hafa nú verið sett kennslumyndbönd í vefumsjónarkerfinu Moya sem reglan og regludeildir nota til
viðhalds á heimasíðum sínum. Myndböndin eru gerð sérstaklega fyrir Oddfellowregluna og notuð eru dæmi úr okkar umhverfi.
LESA MEIRA
Handbók Oddfellowa á Innri síðu
20. nóvember, 2012Handbók Oddfellowa fyrir árið 2012 er komin í rafræna flettingu á Innri síðu. Handbókin verður sem fyrr prentuð og dreift
á regludeildir en í minna upplagi en áður
LESA MEIRA
Lofsvert framtak
19. nóvember, 2012Hvl. stórsír, br. Stefán B. Veturliðason kom á vordögum að máli við br. Gunnar Hans Pálsson í st.nr.11, Þorgeiri, og
ræddi við hann um möguleika á því að taka saman Oddfellowblöð sem ekki höfðu verið bundin inn frá árinu 2001. Br. Gunnar
brást skjótt við og safnaði saman níu eintökum af hverju blaði og stúkubróðir hans, br. Einar Egilsson, tók að sér að
binda blöðin inn í níu bækur í vönduðu bandi. Hver bók er árituð hverju regluheimili sem gjöf frá
Stórstúkunni. Er þetta framhald af innbundnum Oddfellowblöðum sem Stórstúkan gaf regluheimilum árið 2000.
LESA MEIRA
Tveir bbr. í Bjarna riddara sæmdir Heiðursmerki Oddfellowreglunnar
14. nóvember, 2012Á hátíðarfundi í st. nr. 14, Bjarna riddara voru tveir bræður í stúkunni sæmdir Heiðursmerki Oddfellowreglunnar þeir
Ólafur G. Emilsson og Þorgeir Björnsson.
LESA MEIRA
Tónlistarstjóri Stórstúkunnar.
12. nóvember, 2012Á fundi stjórnar Stórstúkunnar þann 24. október sl. var samþykkt að skipa Kjartan Sigurjónsson fm í st. nr. 16, Snorra goða
Tónlistarstjóra Stórstúkunnar. Br. Kjartan vígðist í st. nr. 6, Gest 23. febrúar 1976Hann hlaut búðastig 20. nóvember 1979,
Rebekkustig 26. janúar 1999 og Stórstúkustig 25. maí 2001
Br. Kjartan var einn stofnenda st. nr. 16, Snorra goða og var yfirmeistari stúkunnar árin 1996 til 1998 og stofnfélagi Ob. nr. 3, Magnúsar 5. maí 1990.
LESA MEIRA
Eftirlit í Regludeildum.
12. nóvember, 2012Árlegt eftirlit Stórstúkunnar í Regludeildum hófst að venju með eftirliti í stúkunum á Selfossi fimmtudaginn 25. október sl.
Þá var farið á Akranes, föstudaginn 26. okt. og skoðað þar hjá þremur Regludeildum. Laugardagurinn 26. október var stærsti
skoðunardagurinn þegar allar Regludeildir í Vonarstræti eru skoðaðar og því margt um manninn í Regluheimilinu og ys og þys um ganga
hússins. Törninni hér á suðvesturhorninu lauk síðan með skoðun í Hafnarfirði á sunnudagsmorgni og í Reykjanesbæ eftir
hádegi sama dag.
LESA MEIRA
Jólakort Styrktar og líknarsjóðs Oddfellowa
26. október, 2012Jólakort Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa fyrir árið 2012 er komið út.
Höfundur kortsins í ár er Sigrún Harpa Þórarinsdóttir nemi við Listaháskóla Íslands.
Jólakortasala StlO er mikilvæg fjáröflun fyrir sjóðinn enn ekki síður fyrir líknarsjóði regludeildanna
sem fá hluta af söluandvirði kortanna í sinn hlut. Fulltrúar regludeilda í StlO sjá um sölu kortanna.
LESA MEIRA