Stórstúkan
Stórstúka Íslands, I.O.O.F., var stofnuð 1. ágúst 1933 og heyrði í fyrstu undir dönsku Regluna. Hún varð óháð 31. janúar 1948.
Stórstúkuþing sem er löggjafarþing Reglunnar skal halda annað hvert ár í síðari hluta maí. Stórstúkuþing kýs sér stjórn sem skipuð er 6 embættismönnum.
Æðsti stjórnandi er stórsír en auk hans sitja í stjórninni tveir varastórsírar, tveir stórritarar og stórféhirðir. Stórstúkustjórn skipar níu embættismenn sér til aðstoðar svo sem við innsetningu embættismanna í stúkum og önnur hátíðleg tækifæri.
Stjórn Stórstúkunnar heldur reglulega fund annan hvern miðvikudag kl. 11:00 á tímabilinu september til maí, og einn fund í mánuði yfir sumarmánuðina.
Viðtalstími stórsírs og stórritara er eftir samkomulagi.