Fréttir
Tónlistarstjóri Stórstúkunnar.
12. nóvember, 2012Á fundi stjórnar Stórstúkunnar þann 24. október sl. var samþykkt að skipa Kjartan Sigurjónsson fm í st. nr. 16, Snorra goða
Tónlistarstjóra Stórstúkunnar. Br. Kjartan vígðist í st. nr. 6, Gest 23. febrúar 1976Hann hlaut búðastig 20. nóvember 1979,
Rebekkustig 26. janúar 1999 og Stórstúkustig 25. maí 2001
Br. Kjartan var einn stofnenda st. nr. 16, Snorra goða og var yfirmeistari stúkunnar árin 1996 til 1998 og stofnfélagi Ob. nr. 3, Magnúsar 5. maí 1990.
LESA MEIRA
Eftirlit í Regludeildum.
12. nóvember, 2012Árlegt eftirlit Stórstúkunnar í Regludeildum hófst að venju með eftirliti í stúkunum á Selfossi fimmtudaginn 25. október sl.
Þá var farið á Akranes, föstudaginn 26. okt. og skoðað þar hjá þremur Regludeildum. Laugardagurinn 26. október var stærsti
skoðunardagurinn þegar allar Regludeildir í Vonarstræti eru skoðaðar og því margt um manninn í Regluheimilinu og ys og þys um ganga
hússins. Törninni hér á suðvesturhorninu lauk síðan með skoðun í Hafnarfirði á sunnudagsmorgni og í Reykjanesbæ eftir
hádegi sama dag.
LESA MEIRA
Jólakort Styrktar og líknarsjóðs Oddfellowa
26. október, 2012Jólakort Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa fyrir árið 2012 er komið út.
Höfundur kortsins í ár er Sigrún Harpa Þórarinsdóttir nemi við Listaháskóla Íslands.
Jólakortasala StlO er mikilvæg fjáröflun fyrir sjóðinn enn ekki síður fyrir líknarsjóði regludeildanna
sem fá hluta af söluandvirði kortanna í sinn hlut. Fulltrúar regludeilda í StlO sjá um sölu kortanna.
LESA MEIRA
Keppt um Oddfellowskálina
19. október, 2012Í september s.l. var stofnuð bridgenefnd hjá St. nr. 16 Snorra goða. Nefndin hefur skipuleggt bridgemót Oddfellowa veturinn 2012/2013, sem verður fjögra
spilakvölda tvímenningskeppni á tímabilinu 26.nóvember 2012 til 15.apríl 2013.
LESA MEIRA
Sameiginlegur fundur stjórnenda Ob., Stórsírs og varastórsíra
17. október, 2012Fjórði sameiginlegur fundur stjórnenda Ob., Stórsírs og varastórsíra var haldinn í Regluheimillinu í Reykjanesbæ þann 29.
september sl. Góð mæting var og áður en sest var niður til að funda bauð hússtjórn upp á kjarnmikla súpu og brauð með kaffi
og konfekti á eftir. Síðar um daginn var boðið upp á kökur og kaffi og fór því enginn svangur úr húsi þann daginn!
Sjá nánar á innri síðu.
LESA MEIRA
Talan 7 er ráðandi.
20. september, 2012Talan 7 er heilög tala í margra augum og er einkennilega ráðandi í stofnun tveggja nýrra Regludeilda á næstu mánuðum og misserum.
Systur úr Rbnr. 7, Rbst. Þorgerður I.O.O.F. og st. Þorkell máni I.O.O.F. hafa báðar ákveðið að standa að stofnun nýrra
stúkna. Rbst nr. 17 Þorbjörg verður stofnuð 1. desember nk. og st. nr. 27, Sæmundur fróði verður stofnuð 27. apríl 2013. Talan 7 er
því ráðandi í stofnun þessara regludeilda og þar að auki verða 17 ár frá stofnun bræðrastúku í
Vonarstrætinu.
LESA MEIRA
Verklok og afhending Líknardeildar LSH í Kópavogi
04. september, 2012 Á föstudag þann 7. september fór fram afhending á þeim hluta Líknardeildarinnar í Kópavogi sem Oddfellowreglan tók að
sér að framkvæma í árslok 2011, með samkomulagi milli LSH og Oddfellowreglunnar. Afhendingin fór fram við hátíðlega athöfn að
viðstöddu fjölmenni, en þar voru viðstaddir fulltrúrar LSH og Oddfellowreglunnar auk velferðarráðherra og starfsmönnum ráðuneytisins
hans. Málmblásturssveit lék fyrir dyrum úti meðan gestir gengu í hús og fánar við hún á fánaborgum.
Skoða myndir...
LESA MEIRA
Stórstúkan gerir samning um kaup á skjalakerfinu OneSystems
03. september, 2012Nefnd um skjala- og gagnagrunnsmál, sem skipuð var af Stórstúkunni fyrir nokkru, fór yfir möguleika til skjalavistunar fyrir Stórstúkuna og
í framhaldi af því fyrir Oddfellowregluna í heild. Niðurstaða nefndarinnar var að OneSystems hentaði Reglunni vel. Nefndin er skipuð br. Eiríki
Þ. Einarssyni (form.), br. Valgeiri Hallvarðssyni og str. Kristínu Jónsdóttur, nýskipuðum Stórskjalaverði.
LESA MEIRA
Freysmótið í golfi haldið á Leirunni
24. ágúst, 2012Ob. nr. 5, Freyr I.O.O.F. halda sitt þriðja golfmót patríarka/matríarka og maka þeirra, „FREYSMÓTIÐ". Öllum oddfellowum er
velkomið að taka þátt í mótinu. Freysmótið verður haldið laugardaginn 8. september 2012 hjá Golfklúbbi Suðurnesja.
Skráning á http://www.golf.is/
LESA MEIRA
Yfir- og undirmeistaraþing haldið á Selfossi
23. ágúst, 2012Yfir- og undirmeistaraþing Reglunnar verður haldið í Regluheimilinu að Stjörnusteinum á Selfossi laugardaginn 25. Ágúst 2012. Reyndar hefst
það með óformlegri dagskrá á föstudeginum á milli kl. 20 og 22. Þinggögn verða afhent frá kl. 9:30 á laugardag og
þingið síðan formlega sett kl. 10. Þinglok eru svo áætluð á milli kl. 16:30 og 17:00. Dagskránni lýkur svo með þriggja
rétta kvöldverði sem hefst um kl. 19:30
LESA MEIRA