Fréttir
Söngsveit Oddfellowa
02. apríl, 2012Á árunum um og eftir 1980 var á dögum Söngsveit Oddfellowa sem systir Snæbjörg Snæbjarnardóttir stjórnaði af sínum alkunna
dugnaði og skörungsskap.
LESA MEIRA
Norðanmenn afkastamiklir...
19. mars, 2012Framkvæmdir við Líknardeildina héldu áfram um helgina og nú voru það norðanmenn sem fjölmenntu suður yfir heiðar og
tóku til hendinni þannig að eftir var tekið einsog kemur fram í pistli verkefnisstjóra eftir helgina
LESA MEIRA
Nýtt lykilorð á Innri síðu
18. mars, 2012Stjórn Stórstúkunnar hefur sent regludeildum tilkynningu um breytt lykilorð á Innri síðu oddfellow.is sem hefur þegar tekið
gildi. Reglusystkin geta fengið upplýsingar um hið nýja lykilorð hjá YM eða ritara stúku sinnar.
LESA MEIRA
Námskeiðahelgi í Vonarstrætinu 16. - 17. mars
13. mars, 2012Það verður mikið um að vera í Vonarstrætinu dagana 16. og 17. mars nk. Þá verður haldið námskeið fyrir yfirmeistara
og siðameistara bræðra- og Rebekkustúkna. Á laugardeginum verður einnig námskeið fyrir féhirða og reikningshaldara allra stúkna
og Búða Reglunnar.
Dagskrá námskeiðanna má lesa á Innri síðu...
LESA MEIRA
Vel heppnuð bítlaskemmtun Baldursbræðra
09. mars, 2012Bítlaskemmtun Baldursbræðra og fjölmargra annarra Oddfellowa sem fram fór síðastliðið laugardagskvöld undir yfirskriftinni "Þroskaðir
Bítlar" tókst með afbrigðum vel. Yfir 700 manns sóttu skemmtunina í Háskólabíói, að stærstum hluta voru það
Oddfellowar, bræður og systur úr regludeildum um land allt. Sama hvert litið er, hljómsveitin gerði stormandi lukku, líkt og Drengjakór Þorfinns
Karlslefnis og stúlknatríóið. Salurinn hins vegar ærðist þegar sjálfur Baldur steig á svið, en hann er betur þekktur sem Ragnar
Bjarnason.
LESA MEIRA
Framkvæmdir við Líknardeild
15. febrúar, 2012Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er mikill kraftur í framkvæmdum við Líknardeildina í Kópavogi.
Reglusystkin fjölmenna um hverja helgi og skipta með sér verkum við undirbúining á endurnýjun húsnæðis
LESA MEIRA
Skemmtikvöld í þágu Líknardeildar LSH í Kópavogi
07. febrúar, 2012Seinni hluta liðins árs kviknaði sú hugmynd meðal bræðra í St. Nr. 20 Baldur IOOF að efna til samkomu í því skyni að leggja
góðu málefni lið
LESA MEIRA
Dagur Breiðfylkingunnar.
23. janúar, 2012Laugardagurinn 21. janúar 2012 er annar dagur í Þorra og samkvæmt almanakinu miður vetur. Þegar elnaði að degi rann upp einn fegursti dagur
þessa vetrar. Einni og hálfri stund fyrir birtingu var vaskur hópur manna komin að verkum í húsum Líknardeildarinnar og nú hálfu
fleiri en fyrri laugardag, eða um 60 manns. Vopnað sleggjum, kúbeinum, brotvélum og hverskyns öðrum tólum réðst sá harðsnúni
her sem hér var kominn til atlögu án tafar og sótti fram í breiðfylkingu. Nota verður tungutak Heljarslóðarorustu ef leita á
samlíkinga um framgöngu fylkingunnar.
LESA MEIRA
Leiftursókn við Líknardeild
18. janúar, 2012Á laugardagsmorgunn þann 14. janúar 2012, rétt fyrir kl. átta, dreif að húsum Líknardeildar í Kópavogi, utan
úr náttmyrkri og ausandi rigningu, fjöldi manna, þangað komnir til að hefja vinnu við undirbúning á breytingum og stækkun
Líknadeildarinnar. Skoða myndir
LESA MEIRA
Oddfellowreglan styrkir uppbyggingu líknardeildar í Kópavogi
09. janúar, 2012Oddfellowreglan á Íslandi hefur ákveðið að færa Landspítala að gjöf fyrirhugaðar framkvæmdir við líknardeildina í
Kópavogi. Viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð milli Oddfellowreglunnar á Íslandi og Landspítala 5. janúar 2012.
LESA MEIRA