St. nr. 28, Atli styrkir Krabbameinsfélag Árnessýslu

Ragnar Pálsson og Kári Helgason frá Oddfellowstúkunni Atla ásamt þeim Svanhildi Ólafsdóttur og Högna…
Ragnar Pálsson og Kári Helgason frá Oddfellowstúkunni Atla ásamt þeim Svanhildi Ólafsdóttur og Högna Sigurjónssyni frá Krabbameinsfélagi Árnessýslu við afhendingu styrksins.

Á fundi Oddfellowstúkunnar Atla á Selfossi þann 5.desember sl. var Krabbameinsfélag Árnessýslu með afar áhugavert erindi um starfsemi félagsins á Suðurlandi. Kom fram í máli Svanhildar Ólafsdóttur formanns félagsins að starfsemin væri nánast öll rekin með sjálfboðaliðum og þörfin á félaginu væri mikil. Mikið og óeigingjarnt starf er unnið hjá félaginu þar sem veittur er margskonar stuðningur við krabbameinssjúka jafnt sem aðstandendur. Að þessu tilefni þá veitt Oddfellowstúkan Atli félaginu styrk upp á 600.000 kr. til styrktar enn frekari starfsemi félagsins. En þessi upphæð safnaðist við sölu happdrættismiða á Kótilettukvöldi Atla sem var haldið í haust.