Oddfellow Hraðsveitarkeppni 2015
Það var gaman að síðustu umferð en Fjórir fræknir spiluðu við félaga í Svaninum. En staða fjarkanna var mjög góð fyrir lokaslaginn. Svanurinn lagði Fjóra frækna naumlega en svo kom risaskor hjá Þrumunni, þó ekki úr heiðskýru lofti. 120 stig tóku þeir og náðu næstum Fjórum fræknum. Það munaði aðeins einu stigi.
Fjórir fræknir 500
Þruman 499
Svanur
474
Gosinn 466
4 Ásar
424
OF4
421
Gissur Hvíti 421
Tindastóll 395
Í sveit Fjórir fræknir spiluðu Jóhannes Sverrisson, Óskar Karlsson, Páll Hjaltason og Hjalti Pálsson.
Næst verður haldið áfram með Oddfellow skálina, þann 2. febrúar verður fjórða umferð spiluð.