Frumvarpi til nýrra grundvallarlaga vísað til Stórstúkuþings 2011
25.05.2010
Fréttir
Aukaþing, 33. þing Stórstúku hinnar óháðu Oddfellowreglu á Íslandi, I.O.O.F., var haldið í Oddfellowhúsinu,
Vonarstræti 10 í Reykjavík, laugardaginn 22. maí 2010.
Fyrir þinginu lá frumvarp til nýrra grundvallarlaga fyrir bræðra- og Rebekkustúkur frá Milliþinganefnd síðari, sem skipuð var á Stórstúkuþingi í maí 2009. Að loknum umræðum var samþykkt að vísa málinu til lokaumræðu og afgreiðslu á næsta reglulega Stórstúkuþingi, sem haldið verður dagana 20. til 22 maí 2011.
Sjá ítarlegri frétt á Innri síðu